Gjaldskrá
Gjaldskrá Tjarnarskógar frá 1. janúar 2022
Allir greiða ávaxtagjald kr. 1.023 kr- á mánuði Sameiginleg viðmið leikskóla á Múlaþing varðandi leikskólatíma barna: Foreldrum ber að virða umsaminn leikskólatíma barna sinna. Umsaminn leikskólatími tekur mið af komu- og brottfaratíma barns í og úr leikskóla, þ.e. ef barn á leikskólatíma 9:00 til 14:00 er miðað við að það mæti í leikskólann í fyrsta lagi klukkan 9:00 og hafi yfirgefið leikskólann í síðasta lagi klukkan 14:00. Innheimt er sérstakt gjald ef foreldrar virða ekki umsaminn leikskólatíma. Þar gildir að mæti foreldrar of snemma með barn eða sæki það of seint oftar en einu sinni í mánuði er innheimt sérstakt gjald í hvert skipti, kr. 2.558 Boðið er upp á mikinn sveigjanleika hvað leikskólatíma varðar og er markmið skólanna að koma sem mest til móts við þarfir foreldra eftir því sem aðstæður skólanna leyfa hverju sinni. |