Ytra mat 20. mars - 24. mars

Ytra mat í Tjarnarskógi
Vikuna 20. mars til 24. mars er unnið að svokölluðu ytra mati í okkar leikskóla. Það felst meðal annars í því að matsaðilar frá Menntamálastofnun munu dvelja hér í leikskólanum þessa viku og í vettvangsskoðanir á öllum deildum leikskólans. Einnig taka þeir rýniviðtöl við ýmsa hópa; starfsmenn, foreldra og börn. Þær sem eru frá Menntamálastofnun heita Kolbrún og Sigrún.
Matsaðilar skoða auk þess öll möguleg gögn um skólann, bæði á heimasíðu, prentuð skjöl, kannanir og hvaðeina sem getur varpað ljósi á okkar leikskólastarf. Matinu er ætlað að vera leiðbeinandi og framfaramiðað. Sérstaklega er hugað að því sem er framúrskarandi gott og öðrum til eftirbreytni en að sjálfsögðu er það líka umbótamiðað og hugsað til að styrkja okkar ágæta leikskólastarf þegar til lengri tíma er litið.
Á hverju ári eru nokkrir leikskólar (og raunar grunnskólar líka) metnir með ytra mati og gert ráð fyrir að allir leikskólar landsins fari í gegnum sambærilegt mat og þannig þróist þetta sem sjálfsagður og eðlilegur hlutur leikskólastarfs. Það er Menntamálastofnun sem sér um framkvæmdina fyrir hönd mennta- og menningarmálaráðuneytis.